Vertu velkomin á heimasíðu Pílufélags fatlaðra

Við erum sjálfstætt pílufélag með aðild að World Para Darts
Allir geta mætt og æft hjá okkur, en til þess að keppa þarf að fylgja viðmiðum World Para Darts
Það er hægt að skoða lög og reglur undir þeim flipa hér að ofan.

Við stillum okkur eftir þínum þörfum

Allir með

Við leggjum mikla áheyrslu á að gera okkar besta í að gefa öllum tækifæri að vera með.
Við trúum því að pílukast sé frábært leið til þess að auka líkamlega og andlega heilsu. Það er skemmtilegt að tilheyra hóp sem hefur sama áhugamál og þú.
Hjá okkur er líka velkomið að mæta og ekki tala við neinn nema þjálfaran.

Við fengum nýverið styrk frá lýðheilsusjóði til þess að auka sýnileika okkar.
Við munum vera með opið hús nokkrum sinnum á þessu ári til þess að bjóða ykkur að koma og prófa, og vonandi finnur þú íþrótt sem þú elskar.

Staðsettninginn okkar

Við æfum og keppum í aðstöðu Píluklúbbsins í Hafnarfirði
– Þar eru líka fleiri félög að æfa og opið reglulega fyrir alla
Pínu falið – en það er keyrt bak við – sjá mynd

Stjórn PFF

Í Stjórn Pílufélags fatlaðra eru

Gunnar Guðmundsson

Formaður

Halldór Viktorsson

Ritari

Ingibjörg Magnúsdóttir

Gjaldkeri

Lögleg uppsettning á píluspjaldi fyrir hjólastóla

  • Hæðin á að vera 137cm frá gólfi að rauðri miðju.
  • Lengd frá spjaldbrún (ekki vegg) að kastlínu á að vera 237cm
  • Aftari hjól eiga að vera fyrir aftan kastlínu, fremri meiga vera fyrir framan